Víkurbraut
Markmið deiliskipulagstillögunnar Víkurbraut 14 er að þétta byggð, styrkja götumyndir svæðisins, auka gæði, stuðla að heildstæðu yfirbragði byggðarinnar og skapa lifandi og fallegt miðbæjarsvæði. Áætlað er að umbreyta notkun úr verslun í íbúðarreit (miðsvæði) með fimm stökum fjölbýlishúsum í mismunandi stærðum í samræmi við umhverfið. Húsin raðast á jaðar lóðar, svo hægt sé að skapa skjólgóðan inngarð á milli þeirra, sem íbúar Víkurbrautar 14 og nágrannar geta notið. Lögð er áhersla á heildstæða götumynd og samræmi milli eldri og nýrra mannvirkja, með uppskiptingu og hámarks hæðum, í takt við núverandi hús.



